
Á aðalfundi Sjálfstæðisfélagsins sem haldinn var 28. janúar 2010 í Grunnskóla Sandgerðis var kosin ný stjórn fyrir félagið.
Hana skipa:
-
Árni Sigurpálsson formaður
-
Magnús Sigfús Magnússon varaformaður
-
Salóme Guðmundsdóttir gjaldkeri
-
Hólmfríður Skarphéðinsdóttir
-
Otto Þormar
-
Carl Granz
-
Haukur Andrésson
-
Harpa Jóhannsdóttir
-
Ingimar Sumarliðason
-
Elín Björg Gissurardóttir
Fyrrum stjórnarmönnum þökkuð farsæl störf og þó sérstaklega Reyni Þór Ragnarssyni, sem var formaður félagsins.
Á fyrsta stjórnarfundi í gær fimmtudaginn 4. febrúar 2010 var farið yfir tvö mál sem m.a. voru rædd á aðalfundi félagsins en þau voru;
1. Bókun – tillaga sem lögð var fram á fundinum.
2. Hvernig staðið verði að prófkjöri fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar.
Bókunin er svohljóðandi.
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Sandgerðisbæjar sem haldinn var 28.01.10 í Grunnskólanum Sandgerðis færir til bókar neðanritað.
Þakkir til K-lista.
Félagið vill nota þetta tækifæri og þakka því ágæta fólki sem hefur starfað undir merkjum K-listans fyrir gott og traust samstarf sem verið hefur samfellt og farsælt í átta ár.
Á þeim tíma hafa mörg framfaramál verið leyst í góðu samstarfi við D-listann enda hafa forsendur verkefna og lausnir á þeim ætíð farið saman.
Þetta góða samstarf hefur byggt á trausti, faglegu mati verkefna, á forsendum og getu bæjarfélagsins til að ná settum sameiginlegum markmiðum. Aðalmarkmið samstarfsins er óbreytt en það er að þjóna bæjarbúum á sem hagkvæmastan hátt.
Rétt er að taka fram að lögð hefur verið áhersla á að halda þjónustugjöldum lágum allt tímabilið.
Oftar en ekki hefur S-listinn og áður Þ-listinn ekki átt samleið í framfaramálum bæjarfélagsins.
Breyting á samstarfi.
Nú hafa „spunameistarar“ S-listans og K-lista tekið sig saman og ákveðið að sameina framboðin undir einu merki. Sjálfstæðisfélagið metur það svo að þar fari saman hagsmunir fárra einstaklinga á kostnað þess fjölda sem kosið hafa K-listann í gegnum árin. Kjósendur hafa á liðnum árum talið sig vera að kjósa m.a. óháða, trausta forystumenn til að gæta hagsmuna bæjarfélagsins.
Á þeirri forsendu vill Sjálfsæðisfélagið bjóða óháða kjósendur K-listans velkomna til starfa fyrir bæjarfélagið sitt - innan okkar raða.
Því það má öllum vera ljóst að verkin og málefnin hafa verið sameiginleg, hafa ráðið för en ekki hagsmunir fárra leikstjórnenda.
Breyting á áherslum D-lista
Sjálfstæðisfélagið hefur því ákveðið að bjóða fram undir merkjum “ Sjálfstæðismanna og óháðra bæjarbúa„ í komandi kosningum til að tryggja m.a. aðkomu óháðra kjósenda með afgerandi hætti.
Sjálfstæðisfélagið bíður því þeim einstaklingum sem hafa stutt óháða innan raða K-lista og B-lista, þátt og samstarf í komandi sveitarstjórnarkosningum. Um er að ræða fulla þátttöku í komandi kosningabaráttu þar á meðal að tilnefna fólk til þátttöku í prófkjöri listans og þátttöku í nefndarstörfum á vegum félagsins.
Ástæðan er fyrst og fremst sú að svara kalli fjölmargra einstaklinga sem hafna „spuna“ S-listans og vilja sjá breytingar í líðræðisátt í komandi kosningum.
Ætlunin er að styðja hugsjónir sem vilja opið framboð – sem næst persónukjöri.
Styðjum góð málefni í anda framkvæmda og þjónustu á liðnu kjörtímabili.
Þessi ályktun er auk þess sett fram til að tryggja að íbúar bæjarfélagsins geti komið fram og stutt góð framfaramál sem koma bæjarfélaginu og íbúum þess vel.
Hugmyndin tryggir á afgerandi hátt framvindu mála eftir kosningar í maí næst komandi.
Með þátttöku, undirbúningi og starfi fram að kosningum er öllum bæjarbúum gefinn kostur á röðun í efstu sæti lista „Sjálfstæðisfélagsins og óháðra bæjarbúa“ í komandi kosningum.
Prófkjör ákveðið 20. mars 2010.
Á stjórnarfundi í gær kom fram að 12 einstaklingar hafa óskað eftir þátttöku í komandi prófkjöri.
Einnig kom fram að 22 einstaklingar hafa óskað eftir að starfa fyrir félagið í komandi kosningum en vilja hinsvegar ekki taka þátt í væntanlegu prófkjöri.
Stjórn félagsins fagnar því hvað margir sýna því áhuga að starfa með félaginu að framfaramálum bæjarfélagsins.
Stjórnin vill hér með hvetja þá aðila sem enn eiga eftir að ákveða þátttöku í komandi prófkjöri að tilkynna sig fyrir 6. mars næstkomandi.
Frambjóðendur fá prófkjörsgögn hjá Hörpu Jóhannsdóttur, Norðurgötu 21, í símum 423-7767/845-1522 og Salóme Guðmundsdóttur, Túngötu 15, í símum 423-7798/891-7798.
Ákvörðun stjórnar var samþykkt einróma.
f.h. stjórnar.
Árni Sigurpálsson, formaður.